Finndu táknið þitt í stafrófinu eða sláðu það inn í leitarvélina
Akstur
Ógætilegur og hraður akstur boðar vandræði í fjármálum. Sé ekið í vatni er það fyrir góðu. Að aka hratt eftir hlykkjóttum vegi getur boðað vafasamt fyrirtæki og skaltu gæta að öðrum draumtáknum. Að aka í hestvagni er fyrir giftingu, og er því betra sem vagninn er ræfilslegri. Glæsilegur vagn er fyrir minnkandi tekjum. Að sjá aðra aka í glæsikerru er aðvörun til þín að láta ekki vafasama vini leiða þig í ógöngur.